Umhverfis og öryggisstefna Húsameistara

Húsameistari ehf
Er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingarmarkað, þar sem við höfum tileinkað okkur fagleg vinnubrögð og ef óskað er höfum umsjón með og byggjum eftir ströngustu öryggis og umhverfisstöðlum. Vistvænt fyrirtæki er hugtak sem Húsameistari ehf vinnum með, umhverfismál í eigin starfsemi og í samstarfi við birgja og viðskiptavini. Þannig reynum við að minnka vistspor fyrirtækisins og í virðiskeðjunni. Til að ná árangri fylgir Húsameistari eftirfarandi meginreglum:
Við auðveldum vistvænar framkvæmdir
Í samstarfi við okkar birgja getum við boðið upp á hagkvæmar og vistvænar lausnir þegar kemur að því að reisa, byggja og innrétta hús og húsnæði. Við auðveldum viðskiptavinum að finna og velja vörur sem hægt er að nota í vistvænar byggingar, óháð vottunarkerfi.
Við erum fagleg og framsækin
Við búum yfir þekkingu og reynslu og leggjum metnað í að fagmennska og áreiðanleiki einkenni störf okkar. Starfsmenn okkar fá stöðuga endurmenntun svo okkar viðskiptavinir geti treyst ráðgjöf okkar varðandi framkvæmdir og umhverfismál.
Við setjum okkur markmið
Við setjum okkur tímasett markmið með framkvæmdar- og tímaáætlun.
Öryggiskerfi, við berum ábyrgð
Markmið öryggiskerfis er að samræma öryggis- og heilbrigðisráðstafanir á vinnustað verksins,
til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna. Handbók öryggiskerfisins fjallar um öryggismál almennt og leiðbeiningar hvaða þarfir öryggismála þarf að uppfylla. Viðaukar við öryggishandbókina sýna m.a. gátlista og eyðublöð fyrir þá þætti sem sérstaklega þarf að hafa í huga við framkvæmd verksins. Ekki er um tæmandi upplýsingar að ræða og geta breyttar vinnuaðferðir á verktíma haft í för með sér að áhættuþættir verksins breytist og þarf því öryggiskerfi á vinnustað að vera í stöðugri endurskoðun á verktíma og aðlögun að þeim verkefnum sem upp kunna að koma,
Ábyrgð stjórnenda og einstakra starfsmanna
Samkvæmt vinnuverndarlögum bera allir á hverjum vinnustað vissa ábyrgð á vinnuumhverfinu. Skyldur atvinnurekenda eru víðtækastar. Þeir bera ábyrgð á vinnuumhverfi staðarins í heild. Verkstjórar bera ábyrgð á því sviði sem þeir hafa umsjón yfir. Skyldur starfsmanna afmarkasteinkum af eigin vinnu og vinnubrögðum. Verkstjórar og starfsmenn eiga að bregðast við því semaflaga fer og stuðla að úrbótum. Framkvæmdaraðili skipar samræmingaraðila öryggis- og heilbrigðisáætlana á undirbúnings- ogframkvæmdatíma verks. Viðkomandi aðili skal meðal annars vinna að eða sjá til þess að gerð verði öryggis- ogheilbrigðisáætlun fyrir verkið. Áætlunin á að fela í sér alla þætti er lúta að aðbúnaði, hollustuháttum og öryggisþáttum á vinnusvæðinu.